Skip to content

Karfan mín

Karfan þín er tóm

ChitoCare Beauty Anti-Aging Andlitstvenna

Pakkinn samanstendur af 50 ml ChitoCare Beauty Face Cream og 30 ml ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum.

Ný klínísk rannsókn sýnir að ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum og ChitoCare Beauty Face Cream, notað kvölds og morgna í sex vikur, hefur marktæk áhrif á húðina:
Húðraki eykst um 16%
Þéttleiki húðar eykst um 22%
Teygjanleiki húðar eykst um 7% 

Grófleiki húðarinnar minnkar verulega:
19% minnkun á fínum húðlínum
17% minnkun á djúpum hrukkum

    CHITOCARE BEAUTY FACE CREAM

    Dag- og næturkremið er einstök samsetning náttúrulegra afurða úr Norður-Atlantshafi. Kremið ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar. Kremið inniheldur SPF 15 sólarvörn og mikilvæg andoxunarefni sem vernda húðina gegn skaðlegum umhverfisþáttum, m.a. útfjólubláum geislum sólar og bláu ljósi frá tölvu- og snjalltækjaskjám. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.

    CHITOCARE BEAUTY ANTI-AGING REPAIR SERUM

    ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum inniheldur lífvirka efnið  kítósan úr hafinu við Íslandsstrendur og hýalúrunsýru sem dregur úr fínum línum og öldrunarmerkjum af völdum áhrifa eins og mengunar og streitu. 

    Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína, dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif auk þess að vera bakteríudrepandi og öflug vernd fyrir húðina.
    Anti-Aging Repair Serum frá ChitoCare Beauty endurnærir húðina og gefur henni mjúka og unglega áferð.

    NOTKUN
    Berið mjúklega á andlit og háls. Anti-Aging Repair Serum frá ChitoCare Beauty er tilvalið til að nota að morgni og kvöldi eða eftir því sem þörf krefur.

    FLOTT SAMAN
    Til að auka mýkt og sveigjanleika húðarinnar mælum við með því að nota Face Cream frá ChitoCare Beauty reglulega til viðbótar við Anti-Aging Repair Serum til að verja og endurnæra húðina. Þannig nærðu að viðhalda unglegu útliti og útgeislun!

    Afsláttarverð18.300 kr

    Íslenskar húðvörur

    ChitoCare Beauty Anti-Aging Andlitstvenna
    ChitoCare Beauty Anti-Aging Andlitstvenna Afsláttarverð18.300 kr