Skip to content

Karfan mín

Karfan þín er tóm

Græðandi Sprey

Primex Iceland kynnir til leiks ChitoCare® medical Healing Sprey, lækningatæki uppfært í flokk III.

Til meðferðar á ertri og skaddaðri húð:
• Verndar húðina
• Græðir minniháttar sár
• Dregur úr sviða, roða og kláða
• Hefur góð áhrif á væg brunasár
• Virkar vel á sólbruna
• Náttúrulega græðandi

ChitoCare® medical inniheldur náttúrulegt kítósan sem er örugg, lífvirk fjölliða, einangruð úr auðlindum sjávar við Íslandsstrendur. Kítósan er undur úr hafinu og samanstendur af amínósykrum sem finnast náttúrulega í líkamanum og hefur þannig góðan lífsamrýmanleika. Kítósan myndar filmu, binst húðinni sem þarfnast verndar. Ekki þarf að fjarlægja filmuna þar sem hún brotnar niður á náttúrulegan hátt við endurnýjun húðarinnar.

Græðandi Sprey sefar einkenni svo sem kláða og roða, verndar húðina og stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Gott á væg sár og brunasár, sólbruna, bólur (unglingabólur), húðútbrot, þurra húð, flugnabit og húðbólgur. Áhrifarík skyndihjálp. Má einnig nota á húð til styrkingar, verndar og í forvarnarskyni. Hentar fyrir alla aldurshópa, einnig eldra fólk og börn.

ChitoCare® medical hefur reynst einstaklega vel til að meðhöndla bit eftir lúsmý, bitmý og önnur skordýr sem leynast í náttúru Íslands.

Það dregur úr kláða, roða og öðrum óþægindum sem koma fram eftir lúsmýbit.

___
ChitoCare® Medical  Græðandi Sprey (REF 84500) er CE merkt lækningatæki í samræmi við tilskipun ESB 93/42/EEC og reglugerð 934/2010 um lækningatæki. Smelltu hér til að sækja fylgiseðil

 

Afsláttarverð5.720 kr

Íslenskar húðvörur

Mynd af ChitoCare Medical Græðandi Sprey
Græðandi Sprey Afsláttarverð5.720 kr