Skip to content

Karfan mín

Karfan þín er tóm

Grein: Húðrútína eftir sturtu með ChitoCare Beauty

Húðrútína eftir sturtu með ChitoCare Beauty

Húðrútína eftir sturtu með ChitoCare Beauty

 

Vetrarmánuðurnir eru að skella á og er því mikilvægt að huga að raka húðarinnar. ChitoCare Beauty hefur sett saman hina fullkomnu húðrútínu eftir heita sturtu.

 

Skref 1: Það er góð regla að skrúbba líkamann með ChitoCare líkamsskrúbbnum 3 til 4 sinnum í viku. Skrúbburinn inniheldur náttúruleg efni sem mýkir og hreinsar húðina. Innihaldsefnin eru m.a. kítósan og kaffiagnir sem eru ríkar af andoxunarefnum, þau örva háræðar, hreinsa burt dauðar húðfrumur og vinna gegn appelsínuhúð.

 

 

Skref 2: Næst er komið að ChitoCare Beauty Serum maskanum sem er einstaklega góð meðferð fyrir húðina. Maskinn gefur húðinni fyllingu, raka og aukinn ljóma en hann er þróaður með lífvirka efninu kítósan. Hann inniheldur einnig hyaluronic sýrur sem binda raka í húðinni, ýta undir kollagen framleiðslu og hægja á öldrun húðarinnar.

 

Face Serum Mask

 

Skref 3: Á meðan maskinn vinnur vinnu sína þá er tilvalið að bera á sig líkamskrem. Líkamskremið frá ChitoCare inniheldur náttúruleg, mýkjandi og rakagefandi innihaldsefni sem gera húðina mjúka, slétta og ljómandi.

 

Body Lotion

Skref 4: Síðast en ekki síst, ChitoCare Beauty Face Cream. Andlitskremið er bæði dag- og næturkrem sem ver húðina, er öflugur rakagjafi ásamt því að auka teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar. Kremið inniheldur m.a. Kítósan sem stuðlar að náttúrrulegu viðgerðarferli húðarinnar.

 

Lesa meira

Ekki gleyma handáburðinum

Ekki gleyma handáburðinum

Við lifum á tímum spritts og þar af leiðandi þurra handa, því er mikilvægt að gleyma ekki að næra hendurnar inná milli með góðum handáburði. ChitoCare Hand Cream er einstakur handáburður sem in...

Lesa meira