Kítósan: Undur úr hafinu
Aðalhráefnið okkar, kítósan, er lífvirkt og öruggt líffjölliðuefni sem á uppruna sinn í sjónum við Íslandsstrendur, nánar tiltekið í kítíni, sem finna má í skeljum úthafsrækjunnar.
Kítín er næstalgengasta náttúrulega fjölliðan á jörðinni á eftir sellulósa. Það er jafnframt algengasta náttúrulega amínófjölsykrufjölliðan og er efnið sem gefur skeljum krabbadýra og skordýra styrk sinn. Með ensím- eða efnafræðilegri afasetýlun (deacetylation) er hægt að breyta kítíni í þekktustu afleiðu þess, kítósan.
Kítósan er gert úr amínósykrum sem finnast náttúrulega í mannslíkamanum, sem gerir það lífsamhæft (biocompatible). Kítósan er líka eiturefnalaust og lífbrjótanlegt. Það er því umhverfisvænt hráefni sem eyðist á náttúrulegan máta.
Kítósan ber jákvæða hleðslu og hefur filmumyndandi eiginleika, sem gerir því kleift að bindast neikvætt hlaðinni húðinni. Við þetta myndast örþunn filma sem verndar húðina gegn utanaðkomandi áreiti og styrkir varnarlag hennar, sem stuðlar að bættri endurnýjun, raka, stinnleika og teygjanleika húðarinnar.