



Gua Sha
Hágæða Gua Sha úr ryðfríu læknastáli sem er notað til að nudda og móta húðina með mjúkum strokum. Það eykur blóðflæði, dregur úr bólgum og sléttir húðina fyrir geislandi og frísklegt yfirbragð.
Íslenskar húðvörur
Til að ná sem bestum árangri mælum við með að nota Gua Sha daglega á andlit og háls. Notaðu nuddtækið á hreina húð ásamt andlitsserumi eða andlitskremi svo það renni mjúklega yfir húðina. Notaðu léttan þrýsting og haltu Gua Sha skáhallt að húðinni. Því nær sem það liggur að húðinni, því mýkra og þægilegra verður nuddið. Byrjaðu á mjúkum strokum og endurtaktu hverja hreyfingu 5–10 sinnum á hverju svæði.
Veldu valmöguleika