



Waterless Enzyme Cleanser
Byltingarkenndur ensímhreinsir sem veitir milda djúphreinsun og örvar endurnýjun húðar. Púðrið umbreytist í silkimjúka lausn við snertingu við vatn og fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi af yfirborði húðar á mildan en áhrifaríkan hátt. Húðin verður hrein, mjúk og endurnærð, með jafnara yfirbragð.
Íslenskar húðvörur
Notið eftir þörfum til að djúphreinsa andlit og háls. Hellið litlu magni af púðri í lófann og bætið við nokkrum dropum af volgu vatni. Nuddið síðan höndunum saman til að virkja hreinsinn. Púðrið umbreytist í létta, silkimjúka lausn þegar það kemst í snertingu við vatn. Nuddið á rakt andlit og háls með hringlaga hreyfingum og skolið vel af með vatni. Forðist augnsvæðið.
Sorbitol, Oryza sativa (rice) starch, Sodium lauroyl glutamate, Maltodextrin, Aqua (water), Chitosan, Carica papaya (papaya) fruit extract, Succinic acid, Papain, Solum diatomeae, Protease
Veldu valmöguleika



