

Ocean Glow Gjafasett
Hugsaðu vel um húð líkamans með Ocean Glow gjafasettinu. Inniheldur nærandi líkamskrem og frískandi líkamsskrúbb sem saman skilja húðina eftir slétta, mjúka og endurnærða.
Body Lotion 150ml
Létt en nærandi líkamskrem sem gefur húðinni raka, mýkt og silkimjúka áferð. Kítósan og vandlega valin innihaldsefni vinna saman að því að viðhalda raka og styðja við teygjanleika húðarinnar, á meðan koffín hefur frískandi áhrif. Kremið er auðvelt að bera á eftir sturtu eða hvenær sem húðin þarfnast aukinnar næringar. Það hentar öllum húðgerðum, einnig viðkvæmri og exemkenndri húð.
Body Scrub 150ml
Endurnærandi líkamsskrúbbur sem fjarlægir dauðar húðfrumur og skilur húðina eftir slétta, mjúka og endurnærða. Kítósan úr hafinu, kaffikorn og valhnetukjarnar vinna saman að mildri en áhrifaríkri hreinsun sem vekur náttúrulegan ljóma húðarinnar. Húðin verður sléttari, jafnari og tilbúin fyrir næstu skref.
Body Lotion 150ml í fullri stærð og Body Scrub 50ml fylgir með sem gjöf.
Íslenskar húðvörur
BODY LOTION: Berið kremið á þurra húð og nuddið mjúklega í húðina með hringlaga hreyfingum til að næra, kæla og róa. BODY SCRUB: Berið á raka húð, nuddið mjúklega með hringlaga hreyfingum, sérstaklega þau svæði þar sem húðin er gróf eða hrjúf, skolið síðan vel af.
Veldu valmöguleika


Ocean Glow Gjafasett
Afsláttarverð6,700 kr
Verð