


Winter Rescue Gjafasett
Gefðu líkamanum umhyggju og næringu í vetur með Winter Rescue gjafasettinu.
Settið inniheldur allt sem húðin þín þarfnast til að haldast mjúk og nærð. Endurnærandi sturtusápu, öflugan handáburð, mýkjandi líkamskrem og líkamsbursta sem hreinsar burt dauðar húðfrumur. Fullkomin gjöf fyrir veturinn.
Shower Gel 150ml
Lífvirk sturtusápa hlaðin náttúrulegum innihaldsefnum sem hreinsa, fríska og endurnæra húðina. Hún inniheldur andoxunarefni og samsetningu virkra innihaldsefna úr hafinu og íslensku jarðhitavatni, sem vernda húðina. Sturtusápan gefur húðinni næringu og hreinsar hana á áhrifaríkan hátt án þess að fjarlægja náttúrulegar rakavarnir hennar.
Hand Cream 75ml
Einstakur handáburður sem inniheldur lífvirka efnið kítósan sem myndar filmu og ver hendurnar auk þess að draga úr bakteríumengun. Hann er öflugur rakagjafi fyrir þurrar og sprungnar hendur og þurr svæði eins og olnboga og hné og hentar vel eftir sprittnotkun til að forðast þurrk, kláða og sprungna húð.
Body Lotion 50ml
Frábær leið til að mýkja húðina eftir sturtu eða til að fríska sig við eftir langan dag. Það er hlaðið náttúrulegum, mýkjandi og rakagefandi innihaldsefnum sem gera húðina mjúka, slétta og geislandi.
Þurrbursti
Lyftu húðumhirðu þinni á nýtt stig með þurrbursta fyrir líkamann. Burstinn fjarlægir dauða húðfrumur, örvar blóðflæði og gerir húðina silkimjúka, endurnærða og ljómandi. Notaðu hringlaga hreyfingar á þurra húð fyrir sturtu.
Íslenskar húðvörur
Veldu valmöguleika


